MENNINGARMIÐSTÖÐIN
CULTURAL CENTER

 


DEIGLAN
 


KETILHÚS
 


MYNDIR
PHOTOS

 


 GALLERÍ
GALLERIES

 

 SKÁLDAHÚSIN
POET HOUSES

 TENGLAR
LINKS

 


Næst á dagskrá
Veldu þinn viðburð og taktu daginn frá!

  Stofnfundur samtaka um hljóðfærasmiðju verður haldinn fimmtudaginn 11. mars, kl. 18:30 í Iðngörðum Hjalteyrargötu 20 á Akureyri. Í síðustu viku var haldinn undirbúningsfundur fyrir stofnun hljóðfærasmiðju. Ljóst er að mikill áhugi er á smíði hljóðfæra á Akureyri. Mættir voru áhugasamir tónlistarunnendur á öllum aldri og var ákveðið á fundinum að stofna hljóðfærasmiðju. Engin krafa er gerð til þátttakenda um kunnáttu í smíði hljóðfæra eða smíða almennt. Nánari upplýsingar gefur Kristinn í síma 618-9015 eða gegnum tölvupóst verkefnastjori@grasrotak.is Grasrót í Iðngörðum og Punkturinn í Rósinborg veita hljóðfærasmiðju stuðning.

 Akureyrarakademían fimmtudaginn 11. mars,
kl. 17 flytur Sif Jóhannesdóttir, þjóðfræðingur, erindi í fyrirlestraröð Akademíunnar. Erindið nefnir hún: "Ef húsagrunnar og veggjabrot gætu talað: Miðlun sögu á Skálum á Langanesi." Nánar má lesa um erindið á heimasíðu AkureyrarAkademíunnar
www.akureyrarakademian.is
Fyrirlesturinn fer fram í gamla Húsmæðraskólanum og eru allir velkomnir.

 Draugasögur í Gamla bænum í Laufási, fimmtudagskvöldið 11. mars kl 20.
Þór Sigurðarson, safnvörður Minjasafnins á Akureyri, segir þjóðlegar draugasögur sem gerðust innan veggja torfbæja. Auk þess munu draugalegar rímur líða um hvern krók og kima í sveitinni þetta kvöld sem þær Rósa María Stefánsdóttir og Kristín Sigtryggsdóttir munu kveða af mikilli snilld og drungalegir tónar munu hljóma úr vindlurk Georgs Hollanders. Vegna takmarkaðs pláss þarf að tilkynna um þátttöku í síma 463-3196 eða
895-3172. Aðgangseyrir kr 600.
Lummukaffi verður til sölu inni í Gamla prestshúsinu á eftir dagskrá í Gamla bænum.

 Deiglan fimmtudaginn 11. mars kl. 21. heldur fjölþjóða heimstónlistarsveitin Narodna Muzika tónleika í Deiglunni á Akureyri í samstarfi við Jazzklúbb Akureyrar.
Narodna Muzika var stofnuð árið 2006 af Hauki Gröndal saxófón- og klarínettleikara. Frá upphafi hefur markmið sveitarinnar verið að leika tónlist með rætur frá Balkanskaganum. Í hljómsveitinni hafa leikið ýmsir hljóðfæraleikarar frá Tyrklandi, Búlgaríu, Danmörku, Svíþjóð og Íslandi. Með Hauki leika Borislav Zgurovski á harmóníku, Ásgeir Ásgeirsson á tamboura, Þorgrímur Jónsson á bassa og Erik Qvick á slagverk. Aðgangseyrir kr. 1.500
og kr. 1.000 fyrir félaga í Jazzklúbbnum.

 Sálarstaldur í Kirkjubæ við Ráðhústorg föstudaginn 12. mars kl. 12. Dr. Hjalti Hugason fjallar um kristni og lýðræði.

  Gallerí Box laugardaginn 13. mars kl. 14.
Opnun á sýningunni “ASKA Í ÖSKJU.” Duftker eru viðfangsefni félaga í Leirlistarfélagi Íslands og á sama tíma verður fagnað útgáfu á bók sem inniheldur ljósmyndir af duftkers-verkum eftir félaga. Sýningin er auk þess liður í HönnunarMars sem haldin er dagana 18. til 21. mars og er kynning á starfi hönnuða á Íslandi. Opið verður laugardaga og sunnudaga kl. 14-17, og einnig á skírdag og föstudaginn langa en sýningunni lýkur mánudaginn, annan í páskum 5. apríl. Allir velkomnir.

 Nótan uppskeruhátíð tónlistarskóla í Ketilhúsinu laugardaginn 13. mars kl 14. Tónlistarskólar á Norður- og Austurlandi halda saman tónleika. Kynnir
er Gunnar Gíslason, fræðslustjóri á Akureyri. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.

 Græni Hatturinnnn föstudagskvöld 12. mars og laugardagskvöldið 13. mars tónleikar með hljómsveitinni Hjálmum kl 22. Nánari upplýsingar í síma 461-4646.

 Bókmenntamessa í Akureyrarkirkju sunnudaginn
14. mars kl. 14.

Dr. Hjalti Hugason, prófessor, prédikar.
Bók dagsins "Enn er morgunn" eftir Böðvar Guðmundsson.  Lesari er Þráinn Karlsson.
Sr. Svavar Alfreð Jónsson þjónar fyrir altari. Kór Akureyrarkirkju syngur. Organistar eru Eyþór Ingi Jónsson og Kári Allansson.
Hinir glæsilegu Kaffitónleikar Kórs Akureyrarkirkju í Safnaðarheimilinu að messu lokinni. Aðgangseyrir kr. 1.500,-

 Vetraríþróttahátíð ÍSÍ á Akureyri var sett í Skautahöllinni 6. febrúar. Hátíðin stendur til 21. mars. Nánari upplýsingar um dagskrá er að finna á www.vmi.is

 Amtmannssetrið á Möðruvöllum. Vetrar- og vorviðburðir í Leikhúsinu á Möðruvöllum annan hvern fimmtudag 2010. Næst 11. mars. Sjá nánar hér.

 Spennandi námskeið hjá Símenntun Háskólans á Akureyri. Sjá nánar á www.unak.is/simenntun

 Fræðandi vinnutengd námskeið hjá Starfsmennt. Sjá nánar á  www.smennt.is

Skoðið fleiri viðburði "Á döfinni,, sjá neðar.

 Yfirstandandi sýningar:

 Café Karólína sýning Guðbjargar Ringsted “Ísland í blóma.“ Sýningin stendur til 2. apríl.

 Gallerí Örkin hans Nóa (húsgagnaverslunin) Hafnarstræti 22. Sýning K. Eldjárn "Járn í eldinum".  

  Yfirlitssýning á verkum hollenska listamannsins Joris Rademaker í Listasafninu á Akureyri.
Myndlist Jorisar spannar ólíkar stefnur og rífur skörð í þá múra sem eitt sinn stóðu fyrir kynslóðabil andstæðra fylkinga. Í tilefni af sýningunni hefur Listasafnið gefið út bók með ítarlegri umfjöllun um feril og list Jorisar.

 "Mikado" í Gallerí Ráðhús. Listakonan Anna Gunnarsdóttir er með sýningu í bæjarstjórnarsal ráðhússins á Akureyri. Verkin sem Anna sýnir eru unnin út frá japanska spilinu mikado þar sem leikmenn spila með prik. Verkin eru unnin með shibori tækni sem er gömul japönsk tækni við að búa til munstur á efni sem síðan eru lituð, hér með indigo. Efnin eru sett á pappahólka sem áður héldu saman efnisstranga, en fá hér nýtt hlutverk í leik sem listaverk á vegg.

 

Athugið!
Sendið tilkynningar um menningar- og listviðburði á vidburdir@akureyri.is

 

Á DÖFINNI/WHAT´S ON

...

 

 

MENNINGARMIÐSTÖÐIN/THE CULTURAL CENTER LISTAGIL
Skrifstofa í Ketilhúsinu opin þri. - fös. kl. 10-16
The Office is open Tue.-Fri. 10am-4pm
Sími/Tel.: 466-2609, netfang/E-mail listagil@listagil.is
 

LISTASUMAR 2010
SUMMER FESTIVAL 
OF THE ARTS 2010